Falleg náttföt, náttkjólar eða sloppar eru fyrir löngu orðin klassísk jólagjöf og fyrir mörgum eru ný náttföt orðin ómissandi hluti af jólunum. Enginn vill fara í jólaköttinn og fátt er notalegra en að lesa góða bók í mjúkum og hlýjum náttfötum og gúffa í sig smákökum og súkkulaði í leiðinni!
Hjá okkur fyllist búðin alltaf af fallegum og vönduðum náttfötum, náttkjólum og sloppum þegar líður á haustið og í ár er úrvalið sérstaklega mikið. Fötin hjá okkur koma frá nokkrum evrópskum merkjum: Belmanetti, Coemi, Cyberjammies, Blackspade, Nina von C og Pen∙ky.

Cyberjammies náttfötin henta konum á öllum aldri og eru orðin þekkt fyrir mjúka módalefnið sem notað er í þau. Þegar Cyberjammies var stofnað var markmið þeirra að búa til eins mjúk og þægileg náttföt og hugsast gat og þeim hefur svo sannarlega tekist það!



Náttkjólarnir frá Coemi eru einstaklega fágaðir og vandaðir á alla vegu en þeir eru einnig hannaðir og framleiddir í Evrópu. Látlaus mynstur og kvenleg snið eru ríkjandi.
Sloppar eru alls ekki síðri jólagjöf og þar eru Belmanetti sérfræðingar en slopparnir frá þeim eru æðislegir! Hvort sem það eru þykkir og notalegir flíssloppar, mjúkir baðsloppar úr bambus eða fágaðir og klassískir náttsloppar úr módalefni.



Undirföt eru að sjálfsögðu líka mjög vinsæl sem jólagjafir og er orðið að ófrávíkjanlegri hefð hjá mörgum herrum að gefa hinum helmingnum fallegt undirfatasett í jólagjöf eða þá að þeir setja sig í hlutverk jólasveinsins og gefa þau í skóinn á Þorláksmessu.
Eins og alltaf eru svartur og rauður vinsælir um jólin.



Endilega kíkið við hjá okkur og finnið gjöf fyrir hana – við tökum á móti ykkur í jólaskapinu og veitum faglega ráðgjöf auk þess að bjóða upp á ókeypis innpökkun!
Nýjar vörur
-
LingaDore Kimono, satín Roze16.600 kr. -
LingaDore satín náttkjóll Taupe15.200 kr. -
LingaDore satín náttkjóll Canary Green12.600 kr. -
LingaDore satínnáttkjóll Roze12.600 kr. -
LingaDore Kimono, satín Taupe16.600 kr. -
LingaDore satínnáttkjóll með blúndu Ivory12.600 kr. -
LingaDore Daily Chemise Shadow Grey5.900 kr. -
LingaDore náttkjóll með blúndu Shadow Grey12.600 kr.
